Til þeirra sem hingað leita

Þessi síða er í hvíld. Hér er annars flest sem Félag Maraþonhlaupara hefur fengist við frá stofnun, öll úrslit, slatti af hlaupasögum og fróðleik og eitthvað er að finna af greinum. Sjá nánar í síðuhaus. Aðalritari FM hefur haldið utan um síðuna en það verður ekki gert með stjórnar-og ritarastörfum í sex félögum, formennsku í mikilvægum nefndum og ráðum og ótal áhugamálum. Þess vegna hefur auðveldasta leiðin verið valin, þ.e. Fésbókin. Þar eru flestir hlauparar (ekki allir, því miður) skráðir og mjög auðvelt er að ná til allra. Það var alltaf Akkillesarhæll síðunnar, hvað erfitt var að koma henni á framfæri svo eftir væri tekið. Á Fésbókinni tók 2 mínútur að stofna hóp og eftir 4 daga eru félagar þar að nálgast 400. Slóðin á hópinn er hérna: Valin var opnasta leiðin, almennur hópur og eru ALLIR velkomnir. Við viljum ná til allra.

Fyrir þá sem eru ekki skráðir á fésbók er þessi hópur, sem mér skilst að sé opinn öllum án tillits til fésbókarstöðu viðkomandi. Hann er á tilraunastigi og við sjáum hvað verður úr honum. Meðan við metum stöðuna verður fyrrnefndi hópurinn aðal.

Fyrirspurnir og þess háttar má senda Aðalritara á netfangið gisli40@gmail.com. Sjáumst annars á hlaupum og knúsum hvert annað í dagsins önn. Það er betra. Enn fremur er minnt á Maraþonskrána. Þangað ber að senda upplýsingar um hlaupin þon.

Félag maraþonhlaupara

Helstu upplýsingar:
Stjórn félagsins skipa:
Pétur Helgason, formaður, peturh(hjá)vifilfell.is. Síminn er 6602531
Stefán Örn Einarsson
Haraldur Haraldsson
Elin Ruth Reed
Kristján Ágústsson.
Aðalritari félagsins er Gísli Ásgeirsson. gisli(hjá)internet.is. Sími 6617848.
Maraþonskrárritari og umsjónarmaður er Stefán Thordarson. stefan6440(hjá)gmail.com.

Umsjónarmaður og ábyrgðarmaður þessarar síðu er Gísli Ásgeirsson, Vallarbyggð 7, Hafnarfirði.

Haustþonið 2011

Haustþonið 2011 fór fram í blíðskaparveðri á mælikvarða hlaupara en eitthvað var um mótvind á bakaleiðinni. 27 luku heilu maraþoni en 160 hálfu þoni og þykir það mjög góð þátttaka í ljósi þess fjölda sem hélt utan á haustmánuðum til langhlaupa. Fyrir vikið er spáð þátttökumeti í vorþoni. Sennilega verður opnað fyrir skráningu á Þorláksmessu.

Brautin var nýmæld og fyrir vikið var árangur svo marktækur að jafnvel Siggi Pé getur ekki stjörnumerkt tímana. Að öllu gríni slepptu þá sýndi nýmælingin ekki að gamla brautin væri eins hrikalega stutt og heyrst hafði. Þetta geta þeir staðfest sem hlupu og sáu að eina viðbótin var þessi lykkja á leiðinni í Nauthólsvík en á móti kom að snúningspunktur var færður til baka og ráslína var einnig færð á móti.  Garminmælingar eru ónákvæmar en allar tölur sýndu 100 til 200 metra fram yfir lögbundna vegalengd. Við ákvörðun ráslínu var notað vandað málband úr Hannyrðabúðinni.

Það bar til við ræsingu að aðalritarinn missti heyrn á hægra eyra í hálftíma við óvenju háan hvell úr fallbyssu Stefáns ræsis. Annars tókst að ljúga því að þremur vegfarendum að gæsaveiðitíminn væri hafinn í Elliðaárdal.  Seinni ræsingin var tíðindalaus.

Nokkur röð myndaðist við salernið og tafði það ræsingu í hálfu maraþoni. Til minnis! TVÖ salerni við rásmark í vorþoni. Lágmark!

99% hlaupara hafði númerið mjög sýnilegt þegar komið var í mark. Þetta 1% ruglaði aðalritara svolítið í ríminu en þar sem aðeins vantaði 3 tíma þegar heim var komið, þótti það vel sloppið. Viðkomandi hlauparar hafa haft samband. Samt virðist einn vanta enn, en sá skilar sér.

Morgunblaðið tók myndir og hringdi að fyrrabragði til að fá úrslit. Þau voru birt snimmhendis og fær Moggi prik fyrir það. Einnig var mættur tökumaður frá RÚV, reyndar til að mynda Ágúst Bootcamp, sem er á leiðinni í Sahara, en auðvitað fljóta með góðar myndir af hlaupurum svona heilt yfir. Aðrir miðlar hafa enn ekki birt neitt, þegar þetta er skrifað. Tilkynningar og tölur fóru út að loknu hlaupi.

 

 

Skráning í haustþon 2008!

 ATHUGIÐ:

Aðalfundur félagsins: Verður í Vífilfelli,  Stuðlahálsi 1 kl. 20:00. Gengið inn að framanverðu. Venjuleg aðalfundarstörf:

Gísli Ásgeirsson og Karl Gíslason verða með kynningar á Járnkarlinum í Köln og Tíbetþoninu. Djarfar myndir og berorðar frásagnir. Veitingar á staðnum.

Staður
HAUSTmaraþon Félags Maraþonhlaupara er ræst við stokkinn í Elliðaárdal laugardaginn 25. október, fyrsta vetrardag. Heilt maraþon klukkan 9:00 og hálft maraþon kl. 10.30.

Leið
Elliðaárdalur -Fossvogur-Skerjafjörður-Ægisíða eins og undanfarin ár. Drykkjarstöðvar eru við mark, í Nauthólsvík og á snúningspunkti.

Vegalengdir
Heilt maraþon og hálft. Tveir hringir fyrir heilt og einn fyrir hálft. Boðið verður upp á paraþon. Kona og karl hlaupa hálft maraþon hvort. Samanlagður tími gildir

Skráning
Skráning er í umsjón aðalritara og fer fram á síðu FM á  slóðinni: http://malbein.net/blog. Skráið ykkur í athugasemdakerfið. Einnig má senda aðalritara póst. Netfangið er gisli@internet.is.

SKRÁNINGU LÝKUR Á HÁDEGI 23. október.

Þátttökugjald
Þátttökugjald er 2500 fyrir heilt maraþon og 1500 fyrir hálft. Greiðið vinsamlegast inn á reikning, 113-05-66101, kt. 230857-7849.

Greiðsla jafngildir skráningu. Númer er hægt að sækja á kontór aðalritarans að Brautarholti 28, 3.hæð skv. umtali (sími 562-1745) eða hirða þau við rásmarkið passlegum tíma fyrir hlaupið ef um það semst.;)

Verðlaun
Bikar fyrir þrjú fyrstu sætin í heilu og hálfu maraþoni og fyrsta sætið í paraþoninu. Verðlaunaafhending hefst kl. 13:30 og útdráttur strax á eftir.

Úrdráttarverðlaun
Mikið er af glæsilegum úrdráttarverðlaunum sem kynnt verða síðar.

Úrslit í vorþoni 2008

Heilt NR Nafn Tími
948 Hrafn Gylfason 03:33:38
954 Svanur Bragason 03:38:22
947 Gunnlaugur Júlíusson 03:38:23
950 Karl G Gíslason 03:39:20
944 Elvar Þór Karlsson 03:43:20
956 Þórður Sigurvinsson 03:45:00
942 Elín Reed 03:45:57
943 Ellert Sigurðsson 03:45:58
945 Gísli Ásgeirsson 03:48:49
941 Eiður Aðalgeirsson 03:52:16
951 Pétur Valdimarsson 03:53:28

955 Tómas Kristjánsson 3:57:58
949 Jón Sigurðsson 04:00:09
952 Ragnheiður Valdimarsd 04:03:56
946 Gottskálk Friðgeirsson 04:09:09
953 Rögnvaldur Bergþórsson 04:34:16

     

___________
Hálft NR Nafn
Stefán Guðmundsson 01:14:08
872 Steinn Jóhannsson 01:19:30
854 Neil Kapoor 01:20:03
867 Sigurður Hansen 01:20:06
810 Birgir Sævarsson 01:20:11
844 Jóhann Gylfason 01:20:40
878 Örn Gunnarsson 01:21:16
875 Trausti Valdimarsson 01:26:47
851 Lars Peter Jensen 01:26:59
877 Þórólfur Þórsson 01:27:06
Dagur Egonsson 01:27:42
848 Kristinn Ó Hreiðarsson 01:27:51
873 Sumarliði Óskarsson 01:27:58
820 Eva Einarsdóttir 01:31:14
812 Bjarnsteinn Þórsson 01:35:24
829 Gunnar Páll Jóakimsson 01:35:43
Baldur Haraldsson 01:36:08
871 Sólrun Inga Ólafsdóttir 01:36:31
817 Daniel Smári 01:36:33
845 Jóhann Karlsson 01:37:10
Rúnar Pálmason 01:37:19
860 Rúnar M Ragnarsson 01:37:29
822 Geir Jóhannsson 01:37:54
852 Lárus Jónasson 01:38:00

839 Huld Konráðsdóttir 01:38:20

Ívar Adolfsson 01:38:21

804 Ásgeir Eiríksson 01:38:23
808 Bára Ketilsdóttir 01:38:35
868 Sigurður Ingvarsson 01:39:44
826 Guðmundur Guðnason 01:39:56
835 Hákon Óttarsson 01:40:33
811 Bjarni Svavarsson 01:41:05
865 Sigurður Andrésson plús 1 01:41:15
847 Kári Steinar Karlsson 01:41:17
863 Sigrún Erlendsdóttir 01:41:32
824 Guðbjörg M Björnsdóttir 01:41:45
843 Jens Kristjánsson 01:41:47
842 Ingólfur Örn Arnarson 01:42:46
862 Sif Arnarsdóttir 01:43:36
866 Sigurður H Sævarsson 01:44:35
876 Þórir Magnússon 01:44:52
819 Einar Guðmundsson 01:44:56
833 Halla Þorvaldsdóttir 01:45:00
840 Ingólfur Einarsson 01:45:02
834 Haraldur Haraldsson 01:45:09
853 Martin Ingi Sigurðsson 01:45:30
870 Sondy Johansen 01:46:31
Lúðvík Þorsteinsson 01:46:40
879 Örn Hrafnkelsson 01:46:56
807 Ásta Laufey Aðalsteinsd 01:47:39
806 Árni Gústafsson 01:47:41
831 Gunnar Örn Arnarson 01:47:50
825 Guðmunda Sigurbjörnsd 01:48:41
Grétar Sveinsson 01:49:31
803 Ágúst Sigurjónsson 01:49:39
838 Hildur Edda Grétarsdóttir 01:49:54
Sigrún Norðfjörð 01:52:16
832 Hafdís Reinaldsdóttir 01:53:05
813 Björn Hermannsson 01:54:20
855 Oddur Kristjánsson 01:55:22
Ágúst Kristinsson 01:55:26
828 Gunnar J Geirsson 01:56:55
846 Jóhanna Eiríksdóttir 01:57:10
Christine Buchholz 01:57:23
841 Ingólfur Sveinsson 01:58:47
830 Gunnar Vagnsson 01:59:09
859 Rannveig Gunnarsdóttir 02:01:30
858 Ragnheiður Aradóttir 02:02:20
836 Helga Gígja 02:04:18

850

Kristjbjörg Th Jónsdóttir

02:07:20

816 Corinna Hoffman 02:09:20
850 Kristjbjörg Th Jónsdóttir 02:12:25
809 Bestla Njálsdóttir 02:13:21
814 Bryndís Baldursdóttir 02:13:27
827 Guðrún Gísladóttir 02:13:37
818 Eiður Kristmannsson 02:14:42
823 Gná Guðjónsdóttir 02:19:24
856 Pawel Bartoszek 02:20:48
805 Aðalsteinn Geirsson 02:23:08
874 Sveinbjörg Dagbjartsdóttir 03:11:01

Vormaraþon 2008 -Ertu á listanum?!

Skoðið síðuna hér vinstra megin til að ganga úr skugga um að ritari hafi fært alla þátttakendur til bókar. Enn bætist í hópinn!

Viðbót:

Klukkan er hálfeitt. FImm hafa bæst við í morgun. Brátt verður lokað fyrir skráningu.

Viðbót II.

Klukkan er 13.17. Sjö skráningar síðasta hálftímann. Komaso! Enn er tími til að skrá sig. Vor í lofti og skráningarnefnd er sveigjanleg.

VIðbót III

Klukkan er 23.00. Þeir sem bættust við í kvöld eru allir inni. Ég uppfæri þátttakendalistann í fyrramálið þegar skrifstofan opnar.

Útdráttarverðlaun í marsþoni 2008!!

Afreksvörur gefa 2 pör af New Balance skóm, 2 kassa af High5, 2 nærföt frá Sugoi.

Sportís gefur eina Asics hlaupa skó.

Bændaferðir gefa gjafabréf sem gildir fyrir gistingu eða sem greiðsla upp í utanlandsferð.

Katla hf gefur 5 dunka af Prófitt próteini og stutterma boli með.

Sportland gefur gjafabréf á Mizuno hlaupaföt.

RJS gefur gjafabréf að upphæð 10.000 kr sem úttekt á Leppinn vörur.

MS gefur tvær ostakörfur og bókina Ostalyst 3.

Þjóðleikhúsið gefur gjafabréf fyrir 2 á sýninguna Vígaguðinn.

Mosfellsbakarí gefur tvö gjafabréf.

Fylgifiskar gefa 2x hádegisverðarhlaðborð fyrir tvo.

Á næstu grösum gefur út að borða fyrir tvo.
Útgáfufélagið Birtingur gefur 2x 3ja mánaða áskrift að Séð og Heyrt

Viðbót: Icepharma, sem er umboðsaðili fyrir Nike á íslandi, ætlar að styrkja okkur með 2 pörum af Nike hlaupaskóm.