STÓRHLAUPARAR ÁRSINS 2005
Svo nefnast þeir sem ljúka hefðbundnum maraþonum á Íslandi og Laugaveginum. Skráin er vistuð sem Excel-skjal. Höfundur og ritstjóri hennar er Pétur Reimarsson.
Þrír hlauparar luku hefðbundnum maraþonum á landinu á árinu og Laugaveginum að auki.
Sigurður Ingvarsson er nýr á listanum. Þórður Guðni heldur sínu striki og hefur nú hlaupið í öllum maraþonum og Laugavegshlaupum hér á landi í a.m.k. 8 ár. Þórður nær líka besta samanlagða tíma sem hann hefur náð. Spurning hvernig þetta endar með Þórð.
Bryndís slær svo metið í hina áttina.
Þórður og Sigurður tóku líka þátt í Pétursþoninu í mars og mega því kallast ofurstórhlauparar þetta árið.
Alls eru það 17 hlauparar sem teljast til flokks stórhlaupara. 2 konur og 15 karlar.
Besta samanlagðan tíma á Trausti Valdimarsson 18 klst og 4 mínútur.