Stefnuskrá Hérafélagsins
1. Öll dýrin í skóginum eru vinir en hérinn er langflottastur.
2. Héri tilkynnir sínu fólki hlaupaáætlun viðkomandi hlaups og leggur sig allan fram við að halda henni.
3. Héri er hlynntur drykkjuskap á drykkjarstöðvum og brýnir fyrir sínu fólki að vökva lífsblómið á leiðinni.
4. Héri skal hvetja sitt fólk til dáða innan skynsemis-og siðsemismarka.
5. Hérinn veit að skjaldbakan kemst þangað líka.
Hératoppurinn: Skv. óformlegri könnun ritarans. Bætum lögum í safnið.
- Keep on running
- Áfram veginn….
- Við förum bara, förum bara fetið
- Eye of the tiger
- Run to the hills…
Baráttusöngur hérafélagsins
Lag: Sjá dagar koma….
- Ég sé í fjarlægð brautarverði bíða
- og bráðum kemur drykkjarstöðin mín.
- Ég veit að tíminn lengi er að líða
- en langar samt í meira endorfín.
- Í þúsund skrefum þjáning mín er fólgin
- og þreytuverkir lagast ekki í bráð.
- en þó að hásinin sé heldur bólgin
- hættir enginn fyrr en marki er náð.